Nei hæ esskan og velkomin á Nótenttátublogið !!!

Nótentáturnar ..........

11.09.2007 14:15:18 / Hildur

Haustpistill fra Siam Reap - Kambodiu

Hallo hallo elsku vinkonur - naer og fjaer - adalega fjaer!!!

Jaeja, tha er Hildur litla komin ansi langt i burtu fra heimahogunum - og hyggst verja naestu vikum og manudum a fjarleagum slodum!

Asiuferdalagid er semsagt hafid - fyrir thaer sem ekki vissu - Taeland, Kambodia, Vietnam - jafnvel Laos - og Kina verda vidkomustadir naestu vikna og manuda! Ferdafelagar minir eru ekki af verri endanum - Addinn minn og svo Einar Karl og Hildur kaerstan hans. Vid logdum af stad sl. midvikudag og verdum komin heim a Fron i byrjun desember!

Vid lentum semsagt i Bangkok i sidustu viku og eyddum thar nokkrum skemmtilegum - en nokkud kaotiskum dogum - keyrdum um a Túk-túk (motorhjola-leigubilar) bordum misaetan mat, forum i taelenskt nudd, skodudum buddalikneski og hof, slepptum litlum fuglum ur burum til thess ad verda happy til aeviloka og svo bara drukkum vid i okkur litrikt mannlifid og nutum lifsins og tilverunnar :)

Eftir ys og thys storborgarinnar heldum vid til Kambodiu og erum nuna i Siam Reap, sem er mikill ferdamannastadur thar sem ad her liggja einar helstu fornmynjar Asiu, Angkor Wat, sem er gomul borg i midjum frumskoginum med fullt fullt af hofum og otrulegum byggingum og alls konar likneskjum - otrulega magnad og otrulega fallegt!

En jaaeja, elskurnar, timinn a netcafinu er ad renna ut, hitinn ad verda obaerilegur, svitinn stremir i stridum straumum og moskito bida eftir ad bita mig!!! Best ad drifa sig heim a hostelid - sem by the way heitir Golden Banana og er aedislegt!!!

Stort knus til ykkar allra - vona ad thid hafid thad sem allra best

ykkar einlaega Hildur :)

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

09.09.2007 09:19:49 / Ásta

Haustpistill frá Norður - Jótlandi

Sælar stúlkur mínar !!

Langaði bara að skrifa aðeins hérna inn svona til að halda þessarri síðu gangandi, ég veit ég hef ekki verið sú duglegasta við það en ég nenni varla að skrifa á mína eigin síðu ;-)

Af mér er allt fínt að frétta. Nú er ég flutt nyrst á Jótland, til Álaborgar og líkar það bara mjög vel enn sem komið er. Við erum 22 stykki sem ákváðum að taka restina af náminu hérna en þetta er nýjung og það er mikill metnaður hjá þeim að gera vel og kennslan er til fyrirmyndar, t.d. redduðu þeir mér æðislegri íbúð sem er alveg niðri í miðbæ, við hliðina á sjúkrahúsinu þar sem kennslan fer fram, á 7.hæð með svölum og eigin bað og eldhús með bakaraofni og stórum ísskáp !! Ég bara gæti ekki verið hamingjusamari með þetta og finnst núna eins og ég eigi alvöru heimili í fyrsta sinn í nokkur ár, get farið að skella steik og kökum í ofninn en ekki verið í endalausri útilegu eins og á fyrri stöðum - vantaði bara prímusinn ;-)

Afríkuferðin heppnaðist vel hjá okkur Hjördísi og ég er búin að skella inn nokkrum myndum á síðuna, er að vinna í því svona hægt og rólega að setja inn fleiri og skrifa texta en ég tók yfir 600 myndir þannig að það er úr nógu að velja ;-) Mamma er búin að vera hjá mér núna í nokkra daga, hjálpaði mér að flytja og taka upp úr kössum, voða fínt að hafa hana. Skólinn er byrjaður á fullu og það er víst ekki seinna vænna en að fara að lesa því prófin byrja 5.nóvember en núna er þetta farið að verða soldið sérhæfðara, er í húð-og kynsjúkdómafræði, augum og háls-nef og eyrum. En ég næ að klára prófin fyrir jól ef allt gengur vel og get kannski tekið langt og gott stopp á íslandi yfir jól og áramót :-)

En hvað er að frétta af ykkur ?

Begga er komin með lítinn Ágúst Örn, Sigga byrjuð að kenna, Baddý og Gugga að fara að verða vinnufélagar, Sirrý líklega farin vestur um haf til stóru Ameríku, Hildur lögð af stað í Asíu-reisu en Önnu Stellu hef ég ekki heyrt af í langan tíma.....hvað er að frétta frá Selfossi ? :-)

Ég er að vinna í að fá mér íslenskt símanúmer í gegnum netið þannig að það verði hægt að hringja í mig á íslenskum taxta og það ætti að verða komið í stand í næstu viku (7,9,13) og þá sendi ég póst með nýja símanúmerinu og heimilisfanginu.

Hafið það sem allra best !

Stór faðmur og kossar frá Álaborg

Ásta

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.08.2007 10:50:53 / Gugga

Til LUKKU

Ætlaði bara að henda inn hérna einni línu.

 

TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN SIRRÝ OG SIMMI !!! :D    :D      :D      :D

 

Stór knús


» 1 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 11:08:10 / Begga

Eitthvað að frétta?

Sunnudagurinn 24. júní... Sigríður Ósk átti afmæli í gær... Húrra Húrra Húrra!!! Til hamingju með það... aftur! Er svo ekki verið að fagna eins árs afmæli Júlíu Katrínar í dag... Og svo á hann tengdapabbi minn afmæli í dag og hún Sóley Dögg litla frænka mín líka. Það er meira hvað það fæðist fólkið í júní... allir nema litli drengurinn minn, ég held að hann komi bara ekkert fyrr en í júní á næsta ári. Það er mest lítið á döfinni hjá familíunni Steinmo, Guðmunds... og Berglindardóttir en hver eru sumarplön ykkar hinna? Hún Ásta okkar er flogin á vit ævintýranna í Afríku og það verður víst erfitt að slá því við. Á að fara eitthvað eða gera eitthvað, erlendis, innanlands, skemmtihátíðir eða útilegur? Ég heyrði talað um 10 ára útskriftarafmæli sem ætti að fagna upp í sveit hjá Sverri bónda. Hljómar vel! Voanandi að það komi sem flestir. Hoppsan... nú er friðurinn úti, hún Hilda mín er vöknuð af síðdegisblundinum sínum og vill óskipta athygli móður sinnar. 

Saknaðarkveðjur og knús til ykkar elsku vinkonur! 


» 3 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 10:17:32 / Gugga

Hellú stelpuskjátur

Hvað er að frétta af ykkur sætu flikkur ???

Ég ákvað að henda hér inn nokkrum línum þar sem að það er rólegt í vinnunni hjá mér þessa dagana.  Þar sem að ég er orðin skrifstofudama þá er netið alltaf innan seilingar og því auðvelt að gleyma sér á flakki á alvefnum! 

Annars er nú lítið að frétta af mér þessa dagana, er bara að vinna hérna hjá umhverfisdeild árborgar og svo í pulló auka, og hróa auka og á Geysi auka. En að sjálfsögðu kemur maður smá tralli fyrir inn í rútínunni við og við og þá er Pakkhúsið staðurinn.  Það er reyndar ekki mikið um góða valkosti djammlega séð hérna á sellóinu, þar sem að pakkhúsið er laust við alla samkeppni.  Ég og Lilja vinkona vorum að spá í hvort að ekki væri hægt að kaupa klippikort á búllunni ... þannig að maður myndi spara sér kortavesenið í dyrunum allar helgar .. hehe.

En nú eru bara 8 dagar í að ég skreppi í heimsókn til baunalandsins !! Júhú  ég hef sko ekki farið í tivolíð síðan ég var 7´ára og því er spennan hjá mér gífurleg! Pabbi er líka ekkert smá sáttur að fá félaga með sér í alla rússíbanana. Hingað til hefur grey kallinn þurft að fara einn þar sem að múttan mín er ekki mikið fyrir adrenalín skemmtun :) En Hildur ég hlakka ógó mikið til að hitta ykkur skötuhúin og ekki væri verra ef að Baddý og Ásta sjá sér fært að hitta okkur líka :)

JEIII ... Hildur er eitthvað sérstakt sem þig vantar frá íslandinu góða ?? appololakkrís eða eitthvað hehe.

Begga ég verð í sambandi við þig ef að við ákveðum að skreppa yfir til svíðþjóðar ... er að reynatelja mömmu trú um að það sé billegra að versla í hm í svíðþjóð út af genginu ;) tíhíhí

En jæja best að fara að gera eitthvað af viti hérna í vinnunni ...

yfir og út .  .... Gúccí með ritræpu


» 3 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 22:39:36 / Sirrý

úpps..

..gleymdi því sem ég ætlaði að skrifa og það fyrir svolítið löngu ........Innilega til hamingju með afmælið Ásta mín, bara nokkrum dögum of sein. Alveg vonlaus í afmælisdögum. Vona bara að þú hafir átt góðan dag. Knús frá mér

Og mig sárvandar tíma hjá snyrtifræðingi. Gugga eða Baddý eruð þið að vinna? Þetta er sko neyðarástand: It's not ugly Betty it's ugly Sirrý.

yfir og út

SB


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.04.2007 22:25:44 / Sirrý

14 dagar í skutluna

Merkið við þetta á dagatalið... Spurning að halda upp á það. Ég gæti dregið fram flotta borðann minn.

Annars allt gott að frétta. Allir braggast mjög vel og sumir of vel eins og gerist og gengur. Kristín er farin að hjóla hjálparadekkjalaust og Júlía alveg að fara að labba og ég já dugleg að borða.  Það er búið að vera mikið um gesti að undanförnu. M & p komu ásamt Eydísi systir mömmu og hennar fjölskyldu og voru þau í 7 daga. Strax á eftir þeim komu Ína, Hjörtur og þeirra synir og var þetta virkilega gaman. Aldrei leiðinlegt að fá gesti þá er einna helst gert eitthvað. Alveg ótrúlegt hvað maður er óduglegur að gera eitthvað, alltaf í sömu fötunum að gera sömu hlutina. Hef ekki einu sinni keypt mér bikiní þannig að ég er alltaf í gömlum stuttbuxum frá þér Begga sem þú lánaðir mér þegar þú áttir heima í Heiðmörkinni og ég skilaði aldrei, voðalega flottar champion buxur. Æ maður er svo sorglegur... Simmi er í prófunum núna síðasta prófið á miðvikudaginn þá á nú að gera eitthvað. Búið að lofa Kristínu golfferð, já klikkuðu foreldarnir keyptu golfsett handa barninu, ég virðist ekkert vera hætt í klikkinu þegar það kemur að því að eiga allar græjur. Möst að eiga golfsett ef ské kynni að barninu myndi nú langa í golf. Annars lifir hún fyrir fimleika móður sinni til mikillar ánægu..        Við þurfum að losa húsið 11 maí og því ætlum við bara að slæpast um Boston borg í tvo daga, það verður voðalega næs. Hvað er svo málið með skypið ég bara hitti aldrei neinn á því. Reyndi að hringja í þig Hildur áðan en þá varst þú ekki við. Hvað ætlið þið allar að gera í sumar. Begga að eiga eins og eitt stykki krakka hvað um ykkur hinar?

Hlakka til að heyra í ykkur og hitta einhverjar eftir nokkra daga

Sirrý:D

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

08.04.2007 14:41:11 / Hildur

Páskaunginn minn, páskaunginn minn ætlar að koma í kvöld...

...með poka af gjöfum, og segja sögur og syngja páskalög, það verður gaman tralalalalalal....

Já, gleðilegan páskadag stúlkur mínar - nær og fjær! Mér fannst tími til komin að skrifa nokkrar línur inn á okkar fínu samskiptasíðu, þar sem það er afar langt síðan einhver okkar hefur komið með færslu....ekki síðan hún Berglind kom heim i heiðardalinn fyrir rúmum mánuði síðan! Og það er einnig afar langt síðan ég sjálf hef skrifað, þannig að hér með skal úr því bætt!

 Hm...fréttnæmt....ég er búin að hafa það ljómandi gott í páskafríinu, búin að læra svolítið, sofa talsvert og borða MEGET! Og hreyfa mig smá líka ;) Addann minn sé ég lítið þar sem hann situr sveittur og undirbýr sig fyrir lokaprófin í japönskunni!

 Hvað hefur annars drifið á daga mína? Jú, ég sótti hana Ástu litlu læknastúdínu heim í jósku hálöndin, í lok mars. Það var æði! Höfðum það ótrúlega ljúft, sváfum út, borðuðum góðan mat, fórum á franskan restaurant, drukkum á fínu brugghúsi, fórum á kokteilbar (Til Ástu: "Bartelsbarnum á...." :haha:) dönsuðum á "Den sidste" en vorum svo einnig afskaplega menningarlegar og fóum í agalega kúltiverað bíó og sáum agalega kútúreraða spænska mynd Tapas (hún er æði, mælum með henni!) og fórum á Aros, nútímalistasafnið í Aarhus og sáum tja, mjög áhugaverða sýningu með listamanninum Paul McCarthy! Og veðrið var frábært, 15 stiga hiti og sól = mjög gott íslenskt sumarveður!

En jæja, ljúfurnar mínar litlu, hef þetta ekki lengra að sinni, þagnarbindindið er amk rofið! Endilega skrifið fréttir, Baddý þú ert orðin húseigandi, ekki satt? Og Gugga orðin útskrifaður snyrtifræðingur? Sirrý fréttaritari Nótentátna í Ameríkunni, was up there... og þið allar hinar :D Nema Ásta, ég veit allt um þig, er búin að hitta þig svo mikið undanfarið :lol: Er meira að segja að fara að hitta þig á morgun, þegar þú kemur frá Íslandi...

Risastórt páskaknús úr rigningunni í Köben, ykkar einlægi Hildibrandur.

P.s. Skora á Ástu að setja inn við gott tækifæri, kvæðabálkinn góða sem samin var á kokteilbarnum Bartels...!!!;)


» 6 hafa sagt sína skoðun

05.03.2007 15:47:25 / Begga

Komin heim i heiðardalinn!

Loksins Loksins!!! Við komum heim í gær úr pestarbælinu í fjöllunum. Það voru allir veikir meira eða minna alla vikuna. Við fjölskyldan tókum síðasta hollið og erum enn ekki orðin frísk. Pabbi hans Daniels keyrði bílinn fyrir okkur þar sem ég hafði ekki rænu á. Það er alveg spurning hvort að við séum ekki bara með sömu pest og Sirrý & co þó svo að land og haf skilji að. Hor og hósti og hár hiti að ógleymdri smá ælu hér og þar.

Þannig fór það. Við getum kannski hlegið að þessari misheppnuðu fjallaferð á fimmtugsafmælinu okkar. Við fórum einu sinni á göngusíði og rétt náðum að fara á hundasleða með Hildu Olíviu áður en hún varð veik. Ég ætla að reyna að setja inn myndir í kvöld...aldrei að vita nema ég lumi á einni óléttri af mömmu mu. Þangað til næst skvísur...hafið það gott!

Kössar og knös...


» 2 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 18:33:35 / Sirrý

Fóru allir upp á fjöll?

Ja maður spyr sig. Hvar eru allir? Annars allt gott að frétta af mér og mínum, fyrir utan ógeðslega pest hefur verið að hrjá heimilisfólkið. Ég er búin að vera drukna í horfi,kafna úr hósta og alveg heyrnalaus ótrúlegt að maður skuli vera á lífi!!!! En maður er búin að vera duglegur að sníta þessu út, er alveg að tæmast. .  :$

 i966thde43q2p03+æ.d Smá skilaboð frá henni Júlíu Katrínu :lol:

Þúsund kossar og knús

Sirrý


» 3 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 23:47:01 / Anna Stella

Hún á afmæli í dag!

Þó seint sé langaði mig til að óska þér Begga mín til hamingju með daginn, ættlaði að hringja í dag en suma daga er víst aldrei nóg eða alveg nóg að gestum og boðum:!:Mér leist annars bara vel á það hjá þér að fara að slappa svolítið af og skella þér upp í fjöll, þú átt það sko örugglega skilið.

Bestu kveðjur frá okkur öllum í Tröllhólunum og hellingur af kossum.

Heyrumst fljótlega

Anna Stella


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.02.2007 23:06:09 / Begga

Á leið upp í fjöll!

Gott kvöld úr kuldanum í henni Svíþjóðinni!

Er að slá perónulegt met á ársgrundvelli í að vera á fótum svona seint. Ákvað að vera hugguleg í kvöld og bíða eftir bóndanum sem er í heimaprófi. Annars bara fínt að frétta fyrir utan skólasóknina sem er til fjandans farin. Hoppaði af fimmvikna kúrsinum sem ég á að vera í núna til að geta farið í fjallakofa í næstu viku. Það er allt búið að vera í steik upp í háskóla út af einhverri vírusáras á tölvurnar og kúrsinum var því frestað um eina og hálfa viku. Ég sló þessu bara upp í kæruleysi og í staðinn fyrir að vera að vinna að lokahópverkefni á hundraðogfimmtíu í næstu viku ætla ég að vera einhversstaðar lengst upp í fjöllum. Drekka heitt kakó:) Borða muffins:lol: Og fara á gönguskíði:| Jamm & Já! Minn er búinn að splæsa í eitt par gönguskíði og búin að prófa einu sinni. Sá túrinn var stuttur og endaði með fyrirtaks skapsofsakasti sem ég hélt ég væri vaxin upp úr og kenni þar af leiðandi ófrískum kvenhormónum um ásamt óhjákvæmilegum framþunga, sem "by the way" bara eykst. Væri ég ekki búin að fá staðfestingu á að kúturinn væri bara einn þarna inni væri ég farin að búa mig undir tvíburafæðingu, ég er alveg fjórum til sex vikum stærri en á sama tíma með litlu Ólívuna. Vinan er annars spræk þrátt fyrir þó nokkur veikindi síðustu vikurnar. Nýjasta nýtt er hlaupabólan. Svo er hún örugglega komin á tveggjaáramótþróaskeiðið...neitar að fara að sofa, neitar að borða...neitar hinu mesta getum við sagt...neitar meira að segja að fara á fætur á morgnana. En hún er alltaf sami húmoristinn og leggur pabba sinn ennþá í einelti síðan ég var í Köpen. Jæja! Komin háttatími...LOKSINS... Hafið það gott elskurnar mínar og verið nú duglegar að skrifa svo ég hafi eitthvað að lesa þegar ég kem heim úr fjöllunum.

KramKram!


» 1 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 22:07:20 / Anna Stella

Nammi namm!

Sælar allar saman!

Nú er bara að prófa sig áfram í þessu, virðist ekki flókið en er þegar búin að tapa út heilum texta, byrjanda heppni ekki satt! Markmið kvöldsins er enþá það sama og áðan, klára bestu bitana úr seinni mackintos dolluni frá því um jólin var reyndar ekki opnuð fyrr en um miðjan jan. og ekki hægt að segja en að góður árangur sé að nást, um botnfyllir eftir af 4 kg og geri aðrir betur :lol: Nei annars er bara ágætt að frétta, er reyndar búin að vera föst heima upp á síðkastið, Einar Bjarki fékk ælu og Karen Lind búin að vera með flensu frá því um helgina. Verð að viðurkenna að ég er farin að bíða eftir því að komast aftur í vinnuna, búin að negla kalli heima á fimmtudag og farin að telja niður.  Uss...

Þetta verður víst að vera stittra en áðan . Lítill gaur farin að kalla MAMMA !!! Mig vantar svo heimilisfang og síma hjá ykkur Ásta, Begga og Hildur ef þið gætuð látið það fylgja næst eða sent mér á skypið einar-annastella.

Bestu kveðjur til ykkar allra!

Anna grís


» 6 hafa sagt sína skoðun

20.01.2007 20:53:58 / Hildur

SKYPE

Sælar stúlkur nær og fjær :)

Sit hérna ein á laugardagskveldi - þó ekki að sauma en ekki heldur að læra eins og ég ætti að vera að gera :( En bóndinn er í Deutchland über alles þar sem hann hyggst styðja "strákana" okkar með ráðum og dáðum á HM næstu daga. Andinn er ekki beint yfir mér, þannig að pistillinn verður ekki langur að þessu sinni. En það sem ég vildi nú koma á framfæri er að nú er ég loksins búin að downloada skype aftur í tölvuna mína og heiti hildurgje. Begga og Sirrý - og ef fleiri eru með - þið megið endilega skrifa notendanöfnin ykkar. Er búin að reyna að finna ykkur en án árangurs :( En fann hinsvegar einn Svía sem heitir Daniel Berglind, fæddur 1974 og býr í Gövla í Sverige hí hí....

Stórt faðmlag til ykkar allra,

ykkar einlægi Hildibrandur ;)


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.01.2007 21:51:25 / Begga

Pása!

Er í pásu;) Er á síðasta snúningi, próf á fimmtudag, og ég er ekki viss um að ég hafi það af. Er farin að sjá eftir því að hafa haft það svo gott um jólin og fyrir jólin og eftir jólin:lol: Maður hefði kannski átt að sinna lærdómnum ögninni meir og slaka á í letinni. En það er víst of seint í rassin gripið hvað það varðar eins og svo oft áður...ekki ósjaldan sem maður er úti á góðum tíma:S Ætli sé ekki best að snúa sér aftur að bókunum...bókinni...það er svo langt gengið í þetta sinnið að ég ætla að reyna að komast hjá því að lesa fleiri en eina bók fyrir prófið. Svo á maður að heita háskólanemi!

Slóðakveðjur frá Flogsta!


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Einkablogg Nótentátna
Bjórbók
Klukkan
Dagsetning
18. mars 2010